Árið 2017 fékk #VEXAedu styrk úr Sprotasjóði til að útbúa veflæga fræðslugátt og byggja upp lærdómssamfélag um Makerspaces í grunnskólum á Íslandi. Fræðslugáttin, sem var kölluð „Snillismiðjur“ og var unnin í samstarfi við Reykjavíkurborg og var gerð í vefsíðuforritinu Google Sites innan G-Suite kerfis borgarinnar.
Í fræðslugáttinni er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Þar er bent á fjölbreyttar leiðir til starfsþróunar, innkaupalista, önnur lærdómssamfélög á samfélagsmiðlum, fræðsluefni samansafn af bókum og fræðigreinum. Einnig er að finna verkefnabanka sem #VEXAedu hópurinn hefur sett saman og þýtt í samstarfi við fræðsluveitur og höfunda. Verkefnabankinn verður reglulega uppfærður. Frábært framtak hjá þeim #VEXAedu konum. Takk fyrir.
Á bakvið #VEXAedu standa:
- Anna María Þorkelsdóttir, kennsluráðgjafi Hörðuvallaskóla, Kópavogi
- Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, UT kennslufulltrúi Skrifstofu fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðar
- Erla Stefánsdóttir, verkefnastjóri Mixtúru margmiðlunarvers Reykjavíkurborgar
- Hildur Rudolfsdóttir, kennsluráðgjafi í tölvu- og upplýsingatækni í Garðaskóla, Garðabæ
- Hugrún Elísdóttir, UT verkefnastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar
- Rósa Harðardóttir, skólasafnskennari og UT verkefnastjóri Selásskóla, Reykjavík
- Þorbjörg Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.